sandblastursfilma

Sandblástursfilma

 

Sandblástursfilmur eru vinsælar gluggamerkingar.  Þær byrgja útsýni en hleypa birtu inn.  Algengast er að skera í þær mismunandi munstur, nöfn og jafnvel ljóð eða hvaðeina sem fólki hentar hverju sinni.  Einnig er hægt að prenta beint á filmuna bæði munstur og myndir, annað hvort í svarthvítu eða lit.

 

Góðar gluggamerkingar skila miklum árangri.  Þær eru öflugur, ódýr og einfaldur auglýsingamáti sem nýtist verslunum og öðrum fyrirtækjum á öllum sviðum.  Þar er hægt að leika sér með samspil mynda og texta allt eftir smekk hvers og eins.

 

Gluggamerkingar eru bæði gegnsæjar og ekki gegnsæjar.  Þú getur valið hvort þú vilt sjá út en ekki láta sjást inn. Slíkt bíður upp á ákveðna forvörn gegn innbrotum þar sem freistingarnar eru ekki til sýnis.  Í seinni tíð hefur notkun á gataðri filmu aukist en þá sést vel út en ekki inn nema dimmt sé úti og bjart inni.


Erum með meira en áratugareinslu í faginu,

og bjóðum uppá 10% verðvernd.



Hafið samband í síma

612 6260

info@xtremelogo.net

Xtreme Logo Merkingar


Desjamýri 9y

270 Mosfellsbær


Símar:

612 6260